2015
Í april 2015 tók kórinn, undir stjórn Þorsteins Sigurðsonar, þátt í kóramóti í London þar sem 11 íslenskir kórar frá Norðurlöndum, Englandi og Hollandi komu saman og sungu í St. Mary Abbot’s Church.
Dagurinn var tekinn snemma með æfingum um morguninn, sjálfir tónleikarnir voru klukkan 17:00. Það var vel mætt og þetta voru magnaðir og vel heppnaðir tónleikar. Ekki eitt þurrt auga í húsinu eftir að þjóðsöngurinn var tekinn! Eftir tónleikana var svo allsherjarveisla með skemmtiatriðum, miklum söng og stuði.
Stífar æfingar
Kirkjan að fyllast, létt stress í gangi.
Eftir góða tónleika í St Mary Abbot’s Church.
Haustið 2015 tók Lisa Fröberg við stjórn kórsins og ný heimasíða kórsins auk facebook síðu var tekin í gagnið.
Fyrsta æfing haustsins var þann 7. september i safnaðarheimili Västra Frölunda kirkju.